Græna bylgjan Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 31 maí 2010 10:33
img_5343

Græna bylgjan er alþjóðlegt verkefni sem Samningurinn um líffræðilegan fjölbreytileika stendur fyrir.  Um er að ræða samstarfsverkefni Umhverfisráðuneytisins, Skógræktarfélags Íslands og Yrkjusjóðs.

Í tilefni þess og 20 ára afmælis Yrkjusjóðs þá var efnt til viðburðar föstudaginn 21. maí í Gufunes-bænum  þar sem tveimur fulltrúum hvers grunnskóla var boðið að taka þátt í gróðursetningu trjáplantna .

Sjá meðfylgjandi myndir.

 
Vordagar og skólaslit í Hvassaleitisskóla. Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 25 maí 2010 16:11

Dagana 26.-28. maí eru vordagar í Hvassaleitisskóla.

Þá daga hefst kennsla kl 8:50 og lýkur kl. 12:00.

Aðstandendur nemenda hafa fengið senda heim dagskrá þessara daga og þeir nemendur sem skráðir eru í Krakkakot verða í umsjón skólans til kl. 12:30.

Skólaslit verða mánudaginn 31. maí.

Nemendur í 1.-6. bekk mæta kl. 10:00 í sína heimastofu.

Nemendur í 7.-10. bekk mæta kl.13:45 í Grensáskirkju. Athöfn hefst kl. 14:00. Foreldrar velkomnir.

Útskriftarnemum, aðstandendum þeirra og starfsfólki skólans er boðið að þiggja veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar að athöfn lokinni.

Þökkum samstarfið í vetur

Stjórnendur

 
Vorhátíð Foreldrafélagsins Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 28 maí 2010 18:58
imgp4325

Vorhátíð foreldrafélagsins var haldin í dag í blíðskaparveðri.

Hér eru myndir frá hátíðinni

 
Foreldrafélagið tilnefnt til foreldraverðlauna Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 28 maí 2010 18:45
skjalinga

Foreldrafélag Hvassaleitisskóla hefur verið tilnefnt af Samtökum heimilis og skóla til foreldraverðlauna fyrir verkefnið Vinir í Hvassó

Smelltu á myndina til að sjá nánar

 
3. bekkur fór í sveitaferð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 28 maí 2010 17:36
sveitaff3b48

Þriðjudaginn 25. maí fóru nemendur í 3. bekk ásamt kennurum og tveimur foreldrum í sveitaferð að Grjóteyri í Kjós.

Veðrið lék við hópinn og skemmtu allir sér vel. Við komuna á sveitabæinn tóku á móti okkur fjölmörg húsdýr sem krakkarnir fengu að halda á og klappa. Sumir nemendur voru frakkari en aðrir í návist dýranna á meðan aðrir stóðu á hliðarlínunni og fylgdust með. Áður en við kvöddum sveitabæinn og fórum í fjöruferð gæddu nemendur sér á nesti og léku sér í kringum bæinn. Í fjöruferðinni stungum við höfðinu í grjótið og leituðum að svokölluðum baggalútum. Að lokum fóru allir heim með bros á vör eftir vel heppnaða sveita- og fjöruferð.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 18

Viðburðadagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Á döfinni

fös 10.sep kl. 08:10 - 12:30
5. bekkur í gróðursetningu á Úlfljótsvatni
fim 16.sep kl. 15:00 - 17:00
Námsefniskynningar í 1. -10. bekk
Clicky Web Analytics