Útivistarhópurinn hjólar til Þingvalla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 11 maí 2010 18:13
img_0001 Mánudaginn 10. maí fóru kennarar og nemendur í útivistarvali á hjólum til Þingvalla.  Veðrið lék við hópinn alla leið og vindur var í bakið þannig að aðstæður voru hinar bestar.  Vel sást yfir Þingvelli og í fjarska sást gosmökkurinn úr eldgosinu á Eyjafjallajökli

Þegar á Þingvelli kom hjóluðum við niður Almannagjá og stoppuðum við peningagjá. Þaðan var haldið inn í Vatnskot þar sem var grillað og rennt fyrir ísaldarurriða. Aflabrögðin voru dræm að þessu sinni en hópurinn lét það ekki á sig fá og kláruðum við túrinn á því að hjóla að Öxarárfossi og njóta fegurðarinnar.   Niðurstaðan var ánægjuleg ferð og eftirminnileg.  Vonandi tala myndirnar sýnu máli.

 
10 nýir hverfavefir Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 29 apríl 2010 16:56

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, opnaði tíu nýja hverfavefi á slóðinni www.hverfidmitt.is í gær. Viðburðurinn fór fram í Grundargerðisgarði við Grundargerði í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Þar hefur verið sett upp nestisaðstaða í samræmi við val íbúa í rafrænni íbúakosningu undir yfirskriftinni „Kjóstu verkefni í þínu hverfi“ í desember sl. Aðrar framkvæmdir sem urðu fyrir valinu í kosningunni fara fram í sumar og haust.
Markmiðið með þessu verkefni er skýrt og snýst um það eitt að bæta nærþjónustu við íbúa og gefa þeim enn fleiri tækifæri til þátttöku í ákvörðunum sem snúa að þeirra hverfum.
Á hverfidmitt.is er að finna gríðarlega miklar upplýsingar fyrir íbúa. Endilega kíkið á vefsíðuna http://www.hverfidmitt.is og kynnið ykkur þessa glæsilegu hverfavefi.

 
Vinir í Hvassó í apríl Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 21 apríl 2010 23:44
img_0065 small

„Vinir í Hvassó“ er samstarfsverkefni heimilis og skóla.

Þriðjudagur 20. apríl var tileinkaður verkefninu.

Kennarar skólans hafa tengt jákvæð samskipti sérstaklega við nám og kennslu.  Hugað var að eftirfarandi þáttum:
  • Gott er að gleðja
    Gera umhverfið hlýlegra og vinalegra
    Hrósa bekkjarfélögum
    Hver nemandi fái að njóta sín – við erum öll einstök og frábær
    Traust og virðing sé höfð að leiðarljósi
    Leysa málin á farsælan hátt

Í lok dagsins voru bökuð vinahorn með málsháttum sem allir nemendur og starfsfólk skólans fengu.

Meðfylgjandi myndir sýna ánægju og vinnugleði nemenda og vonumst við til að sú gleði fylgi ykkur inn í sumarið.

blom

Gleðilegt sumar 

Starfsfólk Hvassaleitisskóla

 
Um viðbrögð við öskufalli í Reykjavík Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 20 apríl 2010 10:28

Reykjavíkurborg hefur í varúðarskyni virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við ákvarðanir Almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, jafnvel þó að hverfandi líkur séu á að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu að mati Veðurstofu Íslands. Er það gert til að tryggja viðeigandi vöktun og undirbúning í ljósi eldgossins í Eyjafjallajökli. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum og vatnsbólum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. 

Sérstaklega er fylgst með gangi mála í skólum og leikskólum borgarinnar. Upplýsingar um viðbrögð þeirra vegna hugsanlegs öskufalls er að finna á www.menntasvid.is og www.leikskolasvid.is.

 
Óskum eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 19 apríl 2010 13:11

Að vekja athygli á því sem vel er gert

Foreldraverðlaun

Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2010 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins. Verðlaunin verða afhent í 15. sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 1. júní kl. 15:00.

Með afhendingu verðlaunanna er vakin athygli

Lesa meira...
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 5 af 18

Viðburðadagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Á döfinni

fös 10.sep kl. 08:10 - 12:30
5. bekkur í gróðursetningu á Úlfljótsvatni
fim 16.sep kl. 15:00 - 17:00
Námsefniskynningar í 1. -10. bekk
Clicky Web Analytics