Orðsending til foreldra og nemenda Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 24 mars 2010 13:50

Föstudaginn 26.mars eru nemendur og starfsmenn skólans

hvattir til að mæta í einhverju gulu eða appelsínugulu.

 

Páskaleyfi hefst mánudaginn 29. mars 2010.

 

Gleðilega páskaKennsla hefst aftur þriðjudaginn 6. apríl

samkvæmt stundaskrá.

   Gleðilega páska

 
Að lokinni ferð í Bláfjöll 22. og 23. mars 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 24 mars 2010 15:07
 
img_0073

Kæru foreldrar og nemendur,

Skíði og bretti voru ekki dregin fram  í þetta skiptið í Bláfjöllum. Í stað þess var farið í  gönguferðir. Tvær gönguferðir voru farnar á komudegi. Í fyrri göngunni sýndi skálavörður hópnum hella á svæðinu. En í hrauninu leynast nokkrir slíkir. Því miður hafði fennt fyrir inngang þeirra allra svo ómögulegt var að kanna þá.  Í seinni göngunni var gengið

Lesa meira...
 
Valhópur í ljósmyndun heimsækir Gerðarsafn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 19 mars 2010 14:09
img_002

Miðvikudaginn 10. mars fór ljósmyndavalið í stutta vettvangsferð. Farið var á Gerðarsafn í Kópavogi  þar sem hin árlega ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands er haldin. Á sýningunni eru 150 ljósmyndir þar af 11 verðlaunaðar af dómnefnd. Á neðri hæð var svo ljósmyndasýning Þorvaldar Arnar Kristmundssonar: Náttúra er vörumerki. Krakkarnir voru nokkuð áhugasamir og höfðu gagn og gaman af. Hér eru nokkrar myndir af framtíðarljósmyndurum Íslands á sýningunni.

 
Fundur um umsóknarferli í framhaldsskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 19 mars 2010 09:12
imgp3467

Í morgun kom Sölvi Sveinsson verkefnastjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu í Hvassaleitisskóla og hélt fund með foreldrum/forráðamönnum og nemendum 10.bekkjar um innritun í framhaldsskóla. Sölvi útskýrði meðal annars nýjungar um forinnritun og forgangsskóla og aðrar breytingar sem verða nú í vor á umsóknarferli í framhaldsskóla.

Hér má sjá glærur frá fyrirlestrinum

 
8. bekkur í bæjarferð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 18 mars 2010 15:50
img_5043 Til ánægju og yndisauka var ákveðið að fara í bæjarferð.  Nemendur og  kennarar skemmtu sér hið besta við að gefa öndum, gæsum og álftum brauð sem og að horfa á brettakappa bekkjarins leika listir sínar.  Hópurinn var heppinn með veður og með sól í heiði og bros í hjarta var gleðin við völd.
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 18

Viðburðadagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Á döfinni

fös 10.sep kl. 08:10 - 12:30
5. bekkur í gróðursetningu á Úlfljótsvatni
fim 16.sep kl. 15:00 - 17:00
Haustfundur og námskynningar í 1. -10. bekk
Clicky Web Analytics