|
|
|
fimmtudagur, 04 febrúar 2010 12:11 |
 |
Lífshlaupið er átaksverkefni sem hefst 3. febrúar og stendur í 3 vikur þar sem landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Hvassaleitisskóli hvetur nemendur, starfsfólk og foreldra til þess að taka þátt. Sjá nánar á www.lifshlaupid.is
|
|
|
3. bekkur heimsækir Mjólkursamsöluna |
|
|
|
|
miðvikudagur, 03 febrúar 2010 15:29 |
 |
Fimmtudaginn 27. janúar heimsóttu nemendur 3. bekkjar Mjólkursamsöluna. Þar var vel tekið á móti þeim, þau fengu að sjá gamla muni frá sögu mjólkuriðnaðarins ásamt því að upplifa leið mjólkurinnar frá fjósinu í mjólkurfernurnar sem þau þekkja. Í lokin þáðu nemendur ískalda mjólk, kleinur og ís. Ferðin var hin ánægjulegasta og voru nemendur sjálfum sér og skólanum til sóma.
|
|
|
föstudagur, 29 janúar 2010 15:29 |
 |
Fimmtudaginn 28.janúar var haldið ´80 ball hjá unglingadeildinni. Vel var mætt og klæðnaður í takt við viðeigandi tímabil. Allir virtust skemmta sér vel eins og myndirnar sýna hér.
|
|
|
9. og 10. bekkur heimsækja Listasafn Reykjavíkur |
|
|
|
|
föstudagur, 22 janúar 2010 12:27 |
|
Til upplyftingar andans var farið á þrjár sýningar með nemendur 9. og 10. bekkjar í Listasafni Reykjavíkur miðvikudaginn 20. janúar síðastliðinn. Verkin sem hópurinn bar augum voru: Lucy (myndbands- og hljóðinnsetning) Doddu Maggýjar. Útrás mannsins og geimurinn, myndir eftir Erró og list hóps ungra íslenskra listamanna sem hafa lagt stund á málaralistina á síðustu árum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 18 |